Leita í fréttum mbl.is
Embla

Upplýsingar varðandi ferðina

Lagt verður af stað ekki seinna en kl.13:30 eins og rætt var á fundinum frá Íþróttahúsi Keflavíkur.. Eins og fólk veit þá erum við að fara með rútu, mikill snjór núna og færðin kannski ekki 100%.. Kostnaður er 8.500 á leikmann og er þar innifalið olían, bílstjóri, rútan og allt sem tengist henni, gistingar í 2 nætur í skólanum og pizzahlaðborð á laugardagskvöldinu! Ferðin átti að kosta alls 12.500 en Unglingaráð niðurgreiðir rausnarlega fyrir hvern leikmann 4.000 kr, Garðar Vilhjálms fékk einnig góðan afslátt á rútunni og ég fékk gistingu og pizzahlaðborð á mjög góðu verði..

Mæli með að allir taki með sér nóg af hollu og góðu nesti, svefnpoka/sæng og dýnu, auka nærföt, sokkar, bolir og allt sem tengist þvi að fara keppa, ipod, búningarnir, skórnir osfrv.. Held ég sé ekki að gleyma neinu! Áfram Keflavík! :)

kv. Bjössi þjálfari


3.umferð á Íslandsmótinu hjá 8.fl kvenna A og B

Laugardagur 28.jan
11:30 Keflavík b - Njarðvík
12:30 Keflavík - Tindastóll
13:30 Keflavík b - Hrunamenn
15:30 Keflavík - Hrunamenn

Sunnudagur 29.jan
09:00 Keflavík b - Tindastóll
11:00 Keflavík – Keflavík b
13:00 Keflavík – Njarðvík

kv. Bjössi þjálfari


Foreldrafundurinn!

Foreldrafundur varðandi ferðina á Sauðárkrók verður á miðvikudaginn kl.18:30 (rétt fyrir æfinguna hjá stelpunum) - Treysti á að allir foreldrar mæti á fundinn..

kv. Bjössi þjálfari


Sauðárkrókur helgina 28.-29.jan

Tekið af fb líkt og flestar fréttir okkar í vetur: Næsta törnering hjá 8.fl kvenna A og B(7.fl) verður á Sauðárkróki helgina 28.-29.jan! Lýst mjög vel á það að taka eitt road trip á þessu tímabili og stefni ég á að hafa léttan foreldrafund varðandi þessa ferð í næstu viku! :) Leikjaplan kemur inn von bráðar.. Áfram Keflavík! :)

kv. Bjössi


Mikilvægt að allir lesi þetta

Allir Íslandsmeistarar frá því í fyrra eiga mæta á árlegt lokahóf uppí íþróttamiðstöð Njarðvíkur á Gamlársdag kl.13:00! Mikil áhersla er lögð á að leikmenn mæti í Keflavíkur peysunum sínum eða Keflavíkur göllunum ef því er að skipta.. Verið er að velja íþróttamann ársins og heiðra alla íslandsmeistara á árinu frá Reykjanesbæ! :)

kv. Bjössi þjálfari


Æfingar á næstunni

Æfingar munu verða samkvæmt æfingatöflu út þessa vikuna.. Eftirfarandi er æfingaáætlun frá mán 19.des - þri 3.jan og allar æfingar í A sal:

Mán 19.des 16:10 - 17:15
Mið 21.des 19:00 - 20:15 (B salur - Mun færa hana aðeins fyrr og í A sal)
Fim 22.des 11:00 - 14:00 JÓLAPARTÝIÐ (nánar auglýst innan tíðar á fb síðunni okkar)
Fös 23.des - Þri 27.des FRÍ
Mið 28.des 12:15 - 13:30 (með strákunum)
Fim 29.des 12:15 - 13:30 (með strákunum)
Fös 30.des - Þri 3.jan FRÍ

Æfingar hefjast svo aftur eftir jólafríið miðvikudaginn 4.jan 2012.

kv. Bjössi Einars


Foreldraæfing

Sælir leikmenn og foreldrar! Foreldraæfingin verður fimmtudaginn 1.des frá 17:30 - 18:45.. Er þetta ekki glimrandi góður dagur og tími ??? Þannig að allir foreldrar að fara gera æfingagallann ready :) Takk fyrir og góða helgi..

kv. Bjössi þjálfari


Fjáröflun Keflavíkurstúlkna fæddar 1998

Flatkökur,kanilsnúðar og kleinur verða afhent fimmtudaginn 24.nóvember milli kl 15:00 og 17:00Flutningaþjónustunni (Landflutningar) Fitjabraut 1b.  Þar mun mamma Andreu (Björg Færseth) afhenda vörurnar og foreldri/forráðamaður kvitta fyrir móttökunni.  Stúlkurnar fá afhentann miða með sér með þeirri upphæð sem þær eiga að greiða ásamt reikningsnúmeri en allar greiðslur skulu fara í gegnum banka,merktar viðkomandi barni í skýringu.  Æskilegt er að greiðsla komi innan 7 daga frá afhendingu.

 Kerti verða afhent í næstu viku og gilda sömu reglur við þá afhendingu. Látum vita betur síðar með stað og stund.

Fjáröflunarnefnd


Ferðasaga á Flúðir

Lagt var af stað kl 09:20 á laugardagsmorgun og haldið til Garðabæjar að horfa á minnibolta karla sem voru að keppa þar. Strákarnir unnu leikinn örugglega á móti Hrunamunnum, smá upphitun fyrir stelpurnar sem virðast geta horft á körfubolta allan daginn mér til mikillar ánægju :)

Eftir leikinn var skipt um bílstjóra þar sem þjálfarinn Bjössi mega bílstjóri tók við og héldum við af stað til Flúða. Allt gekk vel og stoppað var í Krónunni á Selfossi þar sem Bjössi átti eftir að nesta sig, stelpurnar tóku sig til og kölluðu hann pabba og voru að biðja hann um að kaupa hitt og þetta :) þeim fannst það mjög fyndið en hann sneri því nú bara við :)

Við komum til Flúða og þar tók Einar körfuboltalegent á móti okkur ásamt, Andreu, Hönnu og Nínu en gist var í félagsheimilinu eins og í fyrra, mjög fín aðstaða.

Á laugardagskvöldinu fórum við út að borða öll sömul á Grund og var það bara mjög flott, eftir það var farið að horfa á mynd en við Einar vorum nú ekkert yfir okkur hrifin af myndavalinu hjá stelpunum held að hún hljóti að hafa verið bönnuð 18 ára og yngri :) en allir bara hressir með það :)

Eins og sést á úrslitunum þá unnu stelpurnar alla sína leiki sannfærandi þó ekki sé meira sagt, ég held að þetta sé besta turnering sem þær hafa spilað, allavega var þjálfarinn mjög ánægður :) Þær voru allar félaginu sínu, þjálfara og foreldrum til sóma, alveg ferlega flottar stelpur sem við eigum.

Keyrðum við svo heim á sunnudag eftir síðasta leikinn, komumst Kambana afþví að Bjössi keyrði, undirrituð er of lofthrædd til að keyra þá upp :) enduðum svo í Garðabæ til að horfa á síðasta leik hjá strákunum í minniboltanum þar sem þeir sigruðu KR. Vorum komin heim um 18:00 á sunnudagskvöldinu.

Flott helgi og ekkert smá gaman að vera með þeim. Takk fyrir mig.

Kveðja Þórunn Þorbergs


Úrslit og stigaskor helgarinnar

7.flokkur á Flúðum - A riðill.
Keflavík - Tindastóll 84 - 10
Keflavík - Hrunamenn 70 - 17
Keflavík - KR 70 - 2
Keflavík - Ármann 52 - 17

Katla 57 stig - víti 5/20
Þóranna 44 - víti 6/8
Andrea Dögg 42
Andrea E. 27 - víti 1/4
Birta 26 - víti 4/8
Elsa 26 - víti 4/10
Guðrún 21 - víti 5/9
Þóra 17 - víti 1/5
Nína 12
Hanna 4 - víti 0/2
Alls 276 stig - víti 26/66 (39,4 %)

Umfjöllun frá stuðningsmanni Keflavíkur númer 1 kemur á heimasíðuna á morgun :)

kv. Bjössi þjálfari


Næsta síða »

Höfundur

Stúlkurnar í 7. og 8. flokki
Stúlkurnar í 7. og 8. flokki
Björn Einarsson s. 864-3123 bjossieinars10@yahoo.com

Færsluflokkar

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 45
  • Sl. sólarhring: 50
  • Sl. viku: 546
  • Frá upphafi: 234828

Annað

  • Innlit í dag: 34
  • Innlit sl. viku: 281
  • Gestir í dag: 27
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband