Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Foreldrafundur mánudaginn 6.feb kl.20:00

Foreldrafundur verður nk. mánudag 6.feb kl.20:00 í K-húsinu við Sunnubraut.  Ræða á fyrirhugaða keppnisferð stúlkna fæddar 1998, fjáraflanir o.fl. Það er mjög mikilvægt að það komi foreldri eða forráðamaður frá hverri stúlku.

Kv. Fjáröflunarnefnd


Fjáröflun Keflavíkurstúlkna fæddar 1998

Flatkökur,kanilsnúðar og kleinur verða afhent fimmtudaginn 24.nóvember milli kl 15:00 og 17:00Flutningaþjónustunni (Landflutningar) Fitjabraut 1b.  Þar mun mamma Andreu (Björg Færseth) afhenda vörurnar og foreldri/forráðamaður kvitta fyrir móttökunni.  Stúlkurnar fá afhentann miða með sér með þeirri upphæð sem þær eiga að greiða ásamt reikningsnúmeri en allar greiðslur skulu fara í gegnum banka,merktar viðkomandi barni í skýringu.  Æskilegt er að greiðsla komi innan 7 daga frá afhendingu.

 Kerti verða afhent í næstu viku og gilda sömu reglur við þá afhendingu. Látum vita betur síðar með stað og stund.

Fjáröflunarnefnd


Fundur mánudaginn 3. október kl. 20:00

Sæl öll,

Mánudaginn 3. október kl. 20:00
Fundur í fjáröflunar- og skemmtinefnd í K húsinu við Sunnubraut.  Áríðandi að allir foreldrar mæti (aðeins foreldrar).

Sjáumst,
Nefndin


Vinnuskema fyrir Ljósanótt

Í tengli vinstra megin á síðunni (Vinna á Ljósanótt) er vinnuskemað fyrir helgina. Þetta er ekki endaleg útgáfa svo fylgist endilega vel með. Það má búast við að skjalið verði uppfært nokkrum sinnum í dag og á morgun.  Það er ekki búið að bóka neinn í bilið frá kl. 22-24 á laugardagskvöldið en ef það bætast einhverjar við þá verða þær m.a. settar þar. 

Það er mjög mikilvægt að stúlkurnar séu í treyju merktri Keflavík og að foreldri sé alltaf í sölubásnum með stúlkunum.  Básinn (tréskúr) er í reit B8 og merktur fána Keflavíkur.... ætti ekki að fara framhjá neinum.

Verið duglegar að skrifa í athugasemdir ef eitthvað er óljóst.

Kveðja,
Nefndin


Fjáröflun á Ljósanótt - skrá sig strax

Til stendur að KarfaN, sem eru Unglingaráð Keflavíkur og Njarðvíkur verði með sameiginlegan sölubás á Ljósanótt.  Við þurfum að manna sölubásinn nk. föstudag og laugardag. 

Þær stúlkur sem æfa með 8. og 9. flokki og hafa áhuga á því að taka þátt í þessari söfnun verða að skrá sig hér á bloggið fyrir kl. 20. fimmtudaginn 1. september.

ATHUGIÐ AÐ 1-2 FORELDRAR VERÐA AÐ VERA Á STAÐNUM LÍKA. FORELDRAR YKKAR ÞURFA ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT Í ÞESSU VERKEFNI AÐ EINHVERJU LEITI.

Verið duglegar að láta allar í liðinu vita, nota facebook og hringja í hinar.

NEFNDIN


SUMARFRÍ - SUMARFRÍ - SUMARFRÍ

Hæ stelpur,

Nú tökum við gott sumarfrí í nokkrar vikur og mætum svo á nokkarar æfingar fyrir landsmótið sem verður haldið um verslunarmannahelgina á Egilsstöðum þetta árið.

Þegar líður að landsmótinu mun ég boða ykkur á æfingar.

ÞIÐ EIGIÐ ALLAR AÐ NOTA SUMARIÐ VEL OG VERA Í KÖRFU ÞEGAR ÞIÐ GETIÐ, OG OFT ER ÞAÐ BESTI TIÍMINN TIL ÞESS AÐ BÆTA SIG.

Einhverjar stelpur úr 8.flokki stúlkna verða valdar til þess að æfa körfubolta í vinnuskólanum í sumar og þá er um að gera að nýta sér það vel.

Einnig verða einhverjar æfingar fyrir 7.flokk stúlkna sem ég vil hvetja ykkur til að nota.

Gleðilegt sumar
Kv. Jón


Engin æfing á fimmtudag og föstudag

Hæ stelpur,

Það verða engar æfingar á fimmtudag og föstudag.

Allar að mæta á lokahóf yngriflokkanna á fimmtudag kl 18.00 í A-sal.

Næsta æfing verður á þriðjudag.

Kv. Jón


Takk fyrir frábæran dag stelpur !

Skemmtiferð föstudaginn 1. apríl tókst í alla staði frábærlega. Byrjað á LaserTag í LaserTag salnum í Kópavogi. Þar var stelpunum 22 skipt í 3 lið og kepptu allir tvo leiki. Liðunum gekk mis vel í keppninni og einstaklingunum einnig en keppnin snýst um að safna sem flestum stigum. Eftir keppnina var pizza og tilheyrandi á staðnum.

Síðan var ekið í Vestubæinn og keptur ís í Ísbúð Vesturbæjar og þaðan var farið í DHL höllina að horfa á leik þrjú í einvígi KR og Keflavíkur karla. Við fengum framlengdan leik og sáum alls 274 stig skoruð en Keflavík vann frækinn sigur 139 - 135.

Það eina sem hægt er að segja eftir þennan dag er:
TAKK KÆRLEGA FYRIR STELPUR Happy
Myndir frá ferðinni eru komnar inn í albúm hér til hliðar.

Þið voruð sjálfum ykkur, félaginu og foreldrum algjörlega til sóma og fyrirmyndar, eins og alltaf.
ÁFRAM KEFLAVÍK!

HPIM3212


Skemmtiferð til Reykjavíkur !

Jæja stúlkur! Þá er komið að því að launa ykkur fyrir frábæran árangur í vetur.  Nú er búið að skipuleggja skemmtiferð til Reykjavíkur nk. föstudag 1. apríl (þetta er ekki gabb).

Dagskráin er:
Kl. 15.00 Farið frá Íþróttahúsinu við Sunnubraut
Kl. 16.00 Laser-tag í Reykjavík
Kl. 17.30 Pizza og gos eftir leikina í Laser-tag
Kl. 18.00 Komið við í Ísbúð Vesturbæjar
Kl. 18.45 Mæting í DHL-höllina á leik KR-Keflavík(karla).
Kostnaður í Laser-tag er kr. 1700.- og innifalið í því eru 2 leikir, 2 pizzusneiðar og gos á eftir.  Síðan þarf að hafa með sér pening til að kaupa ís og fara á leikinn hjá Meistaraflokki karla.Þið þurfið að skrá ykkur á bloggið fyrir miðvikudag og láta vita hverjir geta verið á bílum því eitthvað af foreldrum þarf að fylgja með til að keyra.
Mikilvægt er að mæta kl. 14.40 að Sunnubraut því við þurfum að leggja af stað kl. 15.00 og vera komnar kl. 15.45 á staðinn til að undirbúa leikina í Laser-tag.
Allar að mæta í nýju peysunum J
Ef einhverjar spurningar þá hafið samband við Björgu (s. 899-6490) eða Víði (s. 862-7114)


Keflavik Íslandsmeistari í 7. flokki kvenna

7flokkur_4umf_mars2011-189

Innilega til hamingju stúlkur.  Sjá umfjöllun á keflavik.is


Næsta síða »

Höfundur

Stúlkurnar í 7. og 8. flokki
Stúlkurnar í 7. og 8. flokki
Björn Einarsson s. 864-3123 bjossieinars10@yahoo.com

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband