Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011

VOGAR Í DAG - NÝJAR UPPLÝSINGAR

Hæ stelpur,

Það er mæting í íþróttahúsið í vogum kl 17 í dag.

Þið eigið að mæta með sæng/svefnpoka, dýnur , sundföt og íþróttaföt. 1600 kr fyrir gistingu og 500 kr fyrir pitsu.

Þetta verður bara GAMAN hjá ykkur.

Ef þið komist ekki á réttum tíma, látiði þá hana Möggu vita í síma 8984468

Þið þurfið að koma með morgunmatinn ykkr sjálfar.

Kv. Jón


Fjör í Vogum um næstu helgi

Hæ stelpur,

Magga þjálfari Njarðvíkur hafði samband við mig og spurði mig hvort við hefðum áhuga að koma og gista með liði Njarvíkinga og Grindvíkinga í Vogum um næstu helgi. Mér líst vel á þetta og finnst að við ættum að setja stefnuna á sprell-helgi með þessum liðum. Held að við höfum gott að brjóta upp þetta hefðbundna munstur og sprella smá saman með þessum liðum.

Þetta mun kosta 1600 krónur á hvern leikmann, og einnig væri gott ef eitthvað foreldri gæti gist með liðinu þar sem þetta er ágætis hópur.

FORELDRAR ENDILEGA LÁTIÐ VITA EF ÞIÐ SJÁIÐ YKKUR FÆRT AÐ MÆTA OG GISTA MEÐ STELPUNUM.

Kv. Jón


Flúðir - 4 leikir - 4 sigrar

Takk fyrir skemmtilega helgi á Flúðum.  Slatti af myndum frá ferðinni komnar í myndaalbúm.

Sjá umfjöllun á http://www.keflavik.is/default.aspx?path=/resources/Controls/8.ascx&C=ConnectionString&Q=Top%203%20NewsAll&Groups=0&ID=7157&Prefix=280

Kveðja,
Nefndin


Flúðir

Sælar stúlkur,

Vonum að allar séu tilbúnar fyrir leikina á Flúðum.  Fyrsti leikur hefst kl. 14:00 á laugardag og verða allar að vera mættar tímanlega.  Næsti leikur er kl. 17:00 og er því gott að muna eftir að einhverju til að narta í milli leikja.

Allir út að borða!
Eftir seinni leikinn á laugardag (um kl. 18:30) ætlum við að fara á "Pizza staðinn" á Flúðum en hann verður sérstaklega opnaður fyrir okkur (lokað á veturna!).  Þar verður boðið uppá pizzahlaðborð og gos.  Skorað er á alla foreldra og systkini að koma með.  Kostnaður fyrir stúlkurnar er 1.000 kr. og 1.200 kr. fyrir fullorðna. 

Partý
Eftir matinn verður partý í heita pottinum við bústaðinn sem foreldrar Kristrúnar eru með á leigu.

Gisting
Um kl. 22:30 verður öllum stúlkum skutlað í Félagsheimilið þar sem þær gista.  Hörður pabbi Laufeyjar ætlar að gista með þeim og ef fleiri geta gist þá er það vel þegið.  Stúlkurnar þurfa að hafa vindsæng/dýnu og sæng með sér. Gistingin kostar 500 kr. Muna eftir að koma með eitthvað í morgunmat fyrir sunnudagsmorguninn.


Flúðir um næstu helgi 22.-23.janúar

Hæ stelpur,

Nú er komið að þriðju törneringunni og verður hún haldin a Flúðum.

Eins og vanalega eru foreldrar ábyrgir fyrir því að koma sínu barni á staðinn, og ef foreldrar komast ekki sjálfir í þessa ferð þá er um að gera að tala við aðra foreldra sem eru að fara og reyna að fá far með þeim.
Einnig vantar okkur foreldra (1-2) til að gista með stelpunum í skólanum, og ekki væri verra ef þeir kunna góðar draugasögur.

Fyrsti leikurinn okkar er á laugardeginum 22.janúar kl. 14.00 og viljum við vera klæddar og tilbúnar kl. 13.30.

Liðið verður skipað eftirtöldum leikmönnum.

Kristrún - fer á föstudeginum
Irena - fer á föstudeginum
Ásta
Svanhvít - fer á föstudeginum
Nína - fer á föstudeginum
Laufey
Thelma - fer á föstudeginum
Elfa - fer á föstudeginum
Kristrós - fer á föstudeginum
Elva Lísa- fer á föstudeginum
Karen
Indíana
Þóra
Emelía Ósk - fer á föstudeginum
Kv. Jón


Engin æfing laugardaginn 15.janúar 2011

Hæ stelpur,

Það verður engin æfing laugardaginn 15.janúar 2011

Næsta æfing verður þriðjudaginn 18.janúar

Kv. Jón


Höfundur

Stúlkurnar í 7. og 8. flokki
Stúlkurnar í 7. og 8. flokki
Björn Einarsson s. 864-3123 bjossieinars10@yahoo.com

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband