Leita í fréttum mbl.is

Bæði lið komin með liðstjóra

Sæl veriði öll sömul,

Nú hefur tekist að finna liðstjóra fyrir bæði liðin.

Jón Guðmundsson pabbi Irenu Sólar verður með eldra liðið á laugardag frá 9-12
Svanhildur og Hörður foreldrar Laufeyjar verður með eldra liðið á laugardag frá 12-17
Daníel pabbi Steinunnar Maríu verður með eldra liðið á sunnudag frá 9-12

Björg Hafsteinsdóttir mamma Thelmu verður með yngra liðið á laugardag
Gott væri ef einhver gæti skipt við hana einhverntíman á laugardag

Snorri Jónsson pabbi Svanhvítar verður með yngra liðið á sunnudag

ALLT KLAPPAÐ OG KLÁRT. Smile

 Kv. Jón


Liðstjórar óskast fyrir KEFLAVÍK 10

Auglýsi hér með eftir liðstjórum fyrir KEFLAVÍK 10 á laugardag og sunnudag.

Einnig vantar liðstjóra fyrir KEFLAVÍK 7 á sunnudag.

ENDILEGA TAKIÐ ÞÁTT Í ÞESSU MEÐ STELPUNUM.

STARFSLÝSING LIÐSTJÓRA ER Í ÖÐRU BLOGGI HÉR FYRIR NEÐAN.

 

KV. JÓN


MÓTSGJALD (SAMKAUPSMÓTIÐ)

Sæl aftur foreldrar,

Hver keppandi á samkaupsmótinu verður að greiða 3000 kr í mótsgjald.

Getið komið og greitt á æfingunni á morgun eða á laugardag við upphaf móts.

kv. Jón


Liðstjórar á Samkaupsmótinu

Sæl veriði foreldrar,

 Núna um helgina fer fram hið árlega Samkaupsmót í Keflavík og Njarðvík.

Við mætum til leiks með 2 lið (yngra og eldra).

Vantar liðstjóra til þess að sjá um liðin á meðan móti stendur.

Hlutverk liðstjóra er að halda að liðunum saman í leik, bíó, sundi og öðru sem við kemur mótinu, nema á kvöldvökunni þar sem allir foreldrar sjá um sínar stelpur.

Ef allir leggjast á eitt þarf þetta ekki að vera mikil vinna í kringum þetta.

Hvet alla foreldra að skrá sig. Þeir sem skrá sig fyrstir geta valið sér tíma.
Endilega að sjá hvenær síðasti leikur er á laugardeginum því þá líkur liðstjórahlutverkinu þann daginn.

Hægt er að sjá leikjaniðurröðun hér á síðunni.

Jón Guðmundsson pabbi Irenu Sólar verður frá 9-12 á laugardeginum með eldra liðið.

Núna vantar liðstjóra frá 12-16.30 á laugardag fyrir eldra liðið

ENN OG AFTUR VIL ÉG HVETJA FORELDRA AÐ SKRÁ SIG SEM LIÐSTJÓRA

KV. JÓN

 


UPPLÝSINGAR UM SAMKAUPSMÓTIÐ

SAMKAUPSMÓTIÐ 2008 Jæja stelpur hérna er allt sem þið þurfið að vita fyrir Samkaupsmótið sem verður næstu helgi. Eins og ég var búin að segja ætlum við að mæta með 2 lið í mótið og heita liðin okkar KEFLAVÍK 7 ( stelpur fæddar 1997) og KEFLAVÍK 10 (stelpur fæddar 1998).

Leikir hjá KEFLAVÍK 10 (stelpur fæddar 1998)

Laugardagur: Íþróttahúsið við Sunnubraut

Kl. 10.30         Keflavík10 – Njarðvík 10      VÖLLUR 1
Kl. 13.00         Keflavík 10 – KR 5                VÖLLUR 3
Kl. 17.00         Keflavík 10 - KR 6                 VÖLLUR 4

Sunnudagur:               Íþróttahúsið við Sunnubraut

Kl. 09.00         Keflavík 10 – Breiðablik 10  VÖLLUR 6
Kl. 10.30         Keflavík 10 – Stjarnan 9        VÖLLUR 6
Kl. 12.00         Keflavík 10 – UMFG 8          VÖLLUR 6
 

Leikir hjá KEFLAVÍK 7 (stelpur fæddar 1997)

Laugardagur: Íþróttahúsið við Sunnubraut

Kl. 09.30         Keflavík 7 – UMFG 6           VÖLLUR 3
Kl. 11.00         Keflavík 7 – Stjarnan 5          VÖLLUR 1
Kl. 15.30         Keflavík 7 - Stjarnan 5          VÖLLUR 2
Kl. 16.30         Keflavík 7 – KR 3                 VÖLLUR 3

Sunnudagur:               Íþróttahúsið við Sunnubraut

Kl. 09.00         Keflavík 7 – Njarðvík 7        VÖLLUR 2
Kl. 11.00         Keflavík 7 – Njarðvík 6        VÖLLUR 2
 

BÍÓFERÐ á laugardeginum

KEFLAVÍK 7 fer í bíó kl. 13.00 (EITT)

KEFLAVÍK 10 fer í bíó kl 15.00 (ÞRJÚ)

kv. Jón


SAMKAUPSMÓTIÐ

Hæ stelpur,

Jæja stelpur þá er komið að hinu árlega Samkaupsmóti sem verður næstu helgi (8.-9. mars)

Við ætlum að mæta með 2 lið (yngra og eldra lið) eins og í Póstmótinu og af sjálfsögðu að standa okkur eins vel, eða betur.

Endilega látið vita hvort þið ætlið að keppa eða ekki.

Blogga meira um Samkaupsmótið þegar líður á vikuna.

Kv. Jón


Mánudagur

Hæ stelpur,

Allar að mæta á æfinguna á morgun kl. 15.30-16.20 (hálf fjögur til tuttugu mínútur yfir fjögur)

Bætum inn einni nýrri sendinga-æfingu á æfingunni.

kv. Jón


ÖFLUGIR FORELDRAR

Sæl veriði öll sömul,

Mig langar að þakka ykkur fyrir þann mikla áhuga sem þið sýnið stelpunum, bæði með því að mæta á æfingar og leiki hjá þeim. Þetta er í fyrsta sinn á 20 ára þjálfaraferli mínum sem foreldrar krakka sem ég er að þjálfa eru svona öflugir sem er náttúrulega bara frábært. Að það skuli vera nánast 2 foreldrar á eitt barn þegar verið er að keppa er algjör snilld. Það er ekki spurning að góður stuðningur foreldra getur gert gott lið að enn betra liði.Smile

Ég hef ákveðið að öllu óbreyttu að vera með stelpurnar í a.m.k 3 ár til að geta fylgt eftir því sem við höfum sett í gang. Ég set raunhæfar kröfur og markmið á stelpurnar, en það sem skiptir mestu máli er að hafa rosalega gaman að því að vera í körfubolta og helst að fá fleiri stelpur til að æfa.

Eins og ég segi stelpunum þá eru þær misjafnlega langt komnar í körfubolta sem gerir það að verkum að þær eru misgóðar (það skiptir mestu máli að ná sem flestum leikmönnum upp í meistaraflokk, annað skiptir minna máli), og vil ég biðja foreldra að taka tillit til þess.

Að lokum vil ég minnast á eina reglu sem mér finnst skipta miklu máli. STUNDVÍSI

Ég hef sagt stelpunum að það sé mikilvægt að mæta á réttum tíma á æfingar og fer fram á það við ykkur að hjálpa mér í því, þar sem ég veit að þið eruð mér sammála.Wink

Ef það er eitthvað sem þið eruð ekki sátt við látið mig endilega vita

kv. Jón


Framfarir

Hæ stelpur,

Ég vil þakka ykkur fyrir frábærar æfingar í febrúar. Þið hafið verið duglegar að æfa sem sést á þeim framförum sem þið hafið tekið. Þið verðið alltaf að muna að við erum misjafnlega góðar, en þið getið samt allar tekið framförum eins og þið hafið sýnt núna á einum mánuði.

Þið hafið verið að læra mikið af nýjum hlutum sem hefur gengið bara nokkuð vel. Stundum getur verið erfitt að læra mikið af nýjum hlutum, en smátt og smátt munum við ná tökum á þessu. Ef þið verðið duglegar að æfa þessa hluti munu þeir gera ykkur betri í framtíðinni, því get ég lofað.

Þetta er eitthvað af því sem við höfum verið að læra.

SÓKN:
Ley-up (vinstri-hægri-vinstri) (hægri-vinstri-hægri)
Fake (feik) og í ley-up
Sendingar á highpost (góðar fastar sendingar)
Give and go (feika varnarmann og keyra að körfunni) (V-cut)
Fara bakdyra-megin (back-door) ef þið eruð yfirdekkaðar
Skrína fyrir manninn með boltann (þegar hann er að drippla eða á eftir að drippla)
Senda á highpost og nota V-cut (nota highpost manninn sem skrín)

VÖRN:
Elta sendingu og spila vörn
Alltaf með bakið að körfunni í vörn
Yfirdekka fyrstu sendingu (passa að sóknarmaðurinn fari ekki bakdyra megin framhjá ykkur).
Hjálpar vörn þegar boltinn er 2 eða fleiri sendingar frá ykkar manni
Alltaf að sjá boltann (tilbúnar að hjálpa hver annarri) (benda á ykkar mann og mann með boltann)

Annað sem við höfum lært:
Highpost (hæpóst) = hornin á vítalínunni 
Stilla upp í víti
Stilla upp í byrjun leiks (dómarakast)
Drive (dræv) = keyra að körfunni

Kv. Jón


Æfingin á föstudag

Hæ stelpur,

Æfingin í dag föstudag er frá 18-19 (sex til sjö) í Heiðarskóla

Mæta TÍMANLEGA

kv. Jón


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Stúlkurnar í 7. og 8. flokki
Stúlkurnar í 7. og 8. flokki
Björn Einarsson s. 864-3123 bjossieinars10@yahoo.com

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband