Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
21.2.2008 | 21:16
Hvar er æfingin á föstudag????
Sælar stúllkur,
Eru ekki allar með það á hreinu að æfingin á morgun föstudag er í Akademíunni kl 15.30 (hálf fjögur)
Allar að mæta OG Á RÉTTUM TÍMA
kv. Jón
Láta vita að þið hafið lesið bloggið
20.2.2008 | 22:09
Æfing á fimmtudag kl. 16.50 - 17.50
Hæhæ stelpur,
Vil bara minna ykkur á æfinguna á fimmtudag kl tíu mínútur í fimm (16.50 - 17.50)
REYNUM AÐ KOMA Á RÉTTUM TÍMA EINU SINNI! ALLAR!
KV. JÓN
20.2.2008 | 19:36
Póstmót Breiðabliks á næsta sunnudag
Hæ stelpur,
Næsta sunnudag verður Póstmót Breiðabliks haldið í Smáranum í Kópavogi. Þessu móti var frestaði í janúar vegna veðurs, en hefur nú verið sett á með mjög stuttum fyrirvara.
Við ætlum að mæta með 2 lið til keppni þar sem 1 lið verður skipað stelpum úr 4. bekk og annað skipað stelpum úr 5. bekk.
Þar sem sumir leikirnir okkar stangast á verða ég, Guðný og kristjana með þetta saman.
Svona lítur leikjaniðurröðunin út á sunnudag.
Sunnudagur
5. bekkur
Kl. 08.30 Keflavík 6 UMFN 9
kl. 10.00 Keflavík 6 UMFN 10
kl. 11.00 Keflavík 6 KR 8
4.bekkur
Kl. 09.00 Keflavík 5 KR 9
kl. 10.00 Keflavík 5 UMFN 8
kl. 13.00 Keflavík 5 Breiðablik 6/7
ÞÆR SEM ÆTLA AÐ KEPPA LÁTA VITA Í ATHUGASEMDUM. (t.d. Sigga mætir um helgina)
Kv. Jón
20.2.2008 | 14:55
Hvað eru margar sem lesa bloggið
hæ stelpur,
Hvað eru þið margar sem lesið bloggið nokkrum sinnum í viku?
Allar að svara spurningunni í athugasemdir.
VERÐIÐ AÐ VERA DUGLEGAR AÐ LESA ÞAÐ.
Kv. Jón
19.2.2008 | 14:01
Þetta eigið þið að muna
Þegar við erum 2 saman með bolta í byrjun æfingar erum við að æfa nokkra hluti og verðum því að vanda okkur í þeim öllum (ekki bara vanda ley-up-ið). Til þess að geta orðið góðar í körfubolta þurfum við að geta gert alla þessa hluti mjög vel. Þessa hluti munum við gera nánast á hverri einustu æfingu til þess að verða betri í þeim.
MUNA ÞETTA:
Ley-up (setja boltann í efst í hornið á litla kassanum, þá fer hann alltaf ofaní)
Feik (stíga skrefið áfram, en ekki til hliðar þar sem við erum ekki að dansa)
Drippl (drippla með hægri hægramegin og vinstri vinstramegin)
Sendingar (ákveðnar og sæmilega fastar sendingar í brjósthæð)
Vörn (eftir ley-up; gefa góða sendingu út; elta boltann og fara í vörn)
Kv. Jón
Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.2.2008 | 09:37
Æfing á mánudag
Hæ stelpur,
MUNA EFTIR ÆFINGUNNI Í DAG MÁNUDAG KL. 15.30.
MUNA AÐ MÆTA Á RÉTTUM TÍMA.
Kv. Jón
17.2.2008 | 18:11
Frábær sunnudagur í DHL-höllinni
Hæ stelpur,
Vil byrja á því að þakka ykkur öllum fyrir frábæran sunnudag í DHL-höllinni, þar sem þið stóðuð ykkur allar frábærlega vel hvort sem þið skoruðuð körfu eða ekki því þið voruð allar að leggja ykkur fram við að spila vörn.
Þó að við höfum unnið alla leikina okkar í dag er margt sem við ætlum að laga hjá okkur bæði í vörn og sókn sem mun gera okkur enn betri í körfubolta.
Eins og ég sagði í dag erum við komnar mislangt í að læra körfubolta sem er bara allt í lagi, því við getum allar tekið framförum ef við bara æfum okkur og það er það sem við ætlum að gera. Það er ekki endilega aðalatriðið að skora körfur, þar sem vörnin okkar vinnur flesta leiki (EKKI SATT).
Þegar við höfum lært vörnina okkar almennilega verður mjög erfitt að vinna okkur.
Tók saman stigaskorið í leikjunum 3 í dag.
Laufey 39 stig
Kristrún 20 stig
Kristrós 12 stig
Irena 10 stig
Thelma 8 stig
Svanhvít 4 stig
Tinna 4 stig
Elfa 3 stig
Steinunn 2 stig
Samtals 102 stig ------ Fengum á okkur 38 stig ------- 64 stig í plús
Kv. Jón
16.2.2008 | 18:54
Snemma að sofa
Jæja stelpur,
Þar sem við erum að fara að keppa á morgun og ætlum að vinna allt verðum við að fara snemma að sofa svo við munum hafa orku í þessa 3 leiki.
MUNA EFTIR SKÓM, HOLLU OG GÓÐU NESTI ---- MUNA: ALLAR MEÐ TEYGJU Í HÁRINU
ENDILEGA AÐ LÁTA VITA EF EINHVERJUM VANTAR FAR Á MORGUN.
Sjáumst ferskar á morgun
Kveðja Jón
Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.2.2008 | 22:39
Æfingin í dag föstudag
Hæ stelpur,
Við gerðum frekar lítið á æfingunni í dag þar sem við vorum að fara yfir hluti sem við þurfum að kunna þegar við förum að keppa á sunnudaginn.
Muna eftir:
Hvernig við stillum upp í byrjun leiks (í dómarakasti) ALLTAF 2 MENN VARNARMEGIN
Hvernig við stillum upp í vítum (ef við eigum víti þá 2 í frákast, annars 3 í frákast)
Í vörninni : hjálpavörn (allar að sjá manninn sinn og líka boltann) (stíga út)
í sókninni :skrína fyrir manninn með boltan (gefa boltann á næsta mann eða sækja að körfu)
Þær sem eiga að mæta á sunnudaginn klukkan 9.30 í DHL-höllina eru:
Irena
Kristrún
Laufey
Steinunn
Telma
Elfa
Svanhvít
Kristrós
Tinna
Guðríður
Daníella
Lovísa
Muna að taka með sér skó, hollt nesti. Orku drykkir eru ekki leyfðir þar sem vatnið er langbest við þorsta.
Alls ekki gleyma góða skapinu
Leikirnir okkar
Sunnudaginn 17. feb kl. 10 Keflavík - KR
sunnudaginn 17. feb kl. 13 Keflavík - Tindastóll
sunnudaginn 17. feb kl. 15 Keflavík - Njarðvík
kv. Jón
Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
15.2.2008 | 11:00
Keppni á sunnudag 17.febrúar
Sælar stelpur,
Á sunnudaginn næsta heldur íslandsmótið hjá okkur áfram og við munum keppa í DHL höllinni í vesturbænum í Reykjavík.
Þar sem hópurinn ykkar var frekar fámennur í haust var einungis eitt lið frá okkur skráð í keppni, sem þýðir það að ég get aðeins tekið 12 stelpur með að keppa á sunnudag, og mun ég tilkynna hann hér á blogginu í kvöld.
Fyrir hinar sem fara ekki að keppa á sunnudag mun ég reyna að fá æfingaleiki við lið hér á svæðinu, og svo er líka stutt í Samkaupsmótið.
Kv. Jón
Tenglar
Ýmislegt
- Vinna á Ljósanótt Sett inn 2. september kl. 09:18
- Iðkendur Stúlkurnar í 7. og 8. flokki og foreldrar
- Fjáröflunar- og skemmtinefnd Fjáröflunar- og skemmtinefnd
- Söfnun - uppgjör Uppgjör á söfnunarpeningum
Mínir tenglar
Eldri færslur
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar