Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008
26.3.2008 | 18:04
Sumaræfingar
Hæ stelpur,
Ef að þið hafið áhuga á að æfa körfubolta í sumar ætla ég að reyna að vera með æfingar 1-2 sinnum í viku, þannig að þið getið bætt ykkur líka yfir sumarið.
Er einhver áhugi á því að æfa í sumar?
kv. Jón
26.3.2008 | 17:59
Jæja þá styttist í næstu æfingu
Sælar stelpur,
Þá er farið að styttast í næstu æfingu sem verður á morgun fimmtudag kl. 16.50.
Þetta verður síðasta æfingin mín með ykkur á þessu tímabili þar sem ég fer til Kína á föstudag.
Kristjana og Guðný stjórna æfingunum eins og ég var búin að segja ykkur.
Kv. Jón
17.3.2008 | 19:11
ALLIR ÚT Í KÖRFU
ÞAR SEM ENGAR ÆFINGAR VERÐA NÚNA Í RÚMA VIKU VIL ÉG AÐ ÞIÐ SÉUÐ DUGLEGAR AÐ FARA SAMAN ÚT Í KÖRFU.
ÉG SÁ NOKKRAR STELPUR ÚT Í KÖRFU DAG SEM ER FRÁBÆRT. ENDILEGA AÐ FARA SAMAN Í KÖRFU.
KV. JÓN
17.3.2008 | 19:08
ÞVÍ MIÐUR ERUM VIÐ KOMIN Í PÁSKAFRÍ
Hæ stelpur,
Því miður verð ég að tilkynna ykkur það að við erum komin í páskafrí þar sem húsin eru lokuð á fimmtudag, föstudag og mánudag.
Næsta æfing hjá okkur og síðasta æfingin mín í bili verður fimmtudaginn 27.mars.
ÉG MINNI YKKUR SVO Á ÞESSA ÆFINGU ÞEGAR ÆR DREGUR.
Kv. Jón
16.3.2008 | 17:33
Körfuboltahugtök sem við eigum að kunna
Hæ stelpur,
Þetta er það sem við höfum verið að læra og þið eigið að muna þetta. Ég mun svo smátt og smátt bæta við þennan lista.
Bakdyramegin
Notað um leikmann sem far bakvið varnarmann sinn í átt að körfunni.
Sending á leikmann sem fer bakvið varnarmanninn í keyrslu upp að körfunni.
Bakvörður
Staða á leikvelli, í körfunni eru venjulega tveir bakverðir. Sá sem dripplar og skotbakvörður sem öllu jafnan er besta skytta liðsins.
Bakkari
Stytting á orðinu bakvörður
V-Cutt Gabbhreyfing með V-hreyfingu í átt að körfunni. |
Diss (sending) Sending frá leikmanni sem keyrir inn að körfunni og dissar boltanum út á frían mann. |
Dripplari
Sá sem kemur með boltann upp völlinn.
Einnig kallaður leikstjórnandi.
Ás Sá leikmaður sem kemur upp með boltann í sóknina. Líka kallaður dripplari eða leikstjórnandi. |
Dræf
Keyrsla upp að körfunni. Dræfar í gegn oft notað fyrir leikmann sem keyrir í gegn um vörnina og í átt að körfu.
Fimma
Miðherji, senter. Yfirleitt stærsti leikmaður liðsins, spilar undir körfunni.
Give and go
Sóknarhreyfing þar sem leikmaður sendir á samherja, stingur sér síðan framhjá varnarmanni sínum í átt að körfu og fær sendingu til baka. Senda og fara.
High post
Efsti hluti póst-svæðisins, en póstsvæði eru í kring um vítateiginn.
Hindrun (Skrín) Sett upp af einum sóknarmanni til að fría annan. Leikmaður staðsetur sig þannig að hann hindrar varnarmann í að fylgja sóknarmanni. Oftast kallað skrín. |
Hjálp Gjarnan kallað af leikmanni sem missir manninn sinn fram hjá sér. |
Kött að körfunni
Stunga framhjá varnarmanni í áttina að körfu, tilraun til að fá boltann.
Low post
Neðsti hluti póst-svæðisins. Þar pósta leikmenn gjarnan upp, eru þá með bakið í varnarmanninn og ná sér í stöðu til að fá boltann.
Niðurskrín
Þegar leikmenn setja hindrun niður, gjarnan niður á low póst.
Svindla
Þegar varnarmaður styttir sér leið t.d. í gegn um skrín er hann að svindla. Oft hægt að refsa varnarmönnum sem svindla með því að fría sig á ákveðinn hátt.
Speis (teygja á vörninni)
Pláss á velli. Leikmenn verða venjulega að búa til gott pláss í sókninni til að framkvæma hana.
kv. Jón
Breytt s.d. kl. 17:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.3.2008 | 17:16
JÓN TIL KÍNA
Hæ stelpur/ foreldrar,
Vegna vinnu minnar þarf ég að fara til Kína 28.mars og vera þar til 10.maí og mun því missa af síðasta fjölliðamóti stelpnanna sem mér þykir mjög leiðinlegt, en ekkert við því að gera.
Kristjana Eir og Guðný munu þjálfa í minni fjarveru og munu gera þá hluti sem við höfum verið að æfa.
Margrét Sturlaugsdóttir mun sjá um liðið (ásamt Kristjönu og Guðnýju) í síðasta fjölliðamótinu sem verður 12-13 apríl.
Ég vona að foreldrar sætti sig við þessa breytingu sem verður núna næstu vikurnar og styðji vel við bakið á liðinu eins og þeir hafa gert frá því ég tók við liðinu.
Kv. Jón
16.3.2008 | 17:05
Æfingin á mánudaginn
Hæ stelpur,
ALLAR AÐ MÆTA Á ÆFINGUNA Á MÁNUDAGINN KL. HÁLF FJÖGUR (15.30) Í AKADEMÍUNNI.
MUNIÐ AÐ MÆTA Á RÉTTUM TÍMA!!!!!!!
KV. JÓN
16.3.2008 | 17:02
Mæting á æfingar
Hæ stelpur,
Frá því að ég byrjaði að þjálfa hefur sami kjarninn mætt mjög vel á æfingar, en svo eru sumar sem mæta bara þegar þeim hentar, sem er ekki gott. Þrátt fyrir þið hafið allar tekið framförum þá hafa þær sem best hafa mætt tekið mestum framförum sem er auðvitað eðlilegt.
ENDILEGA REYNIÐ ÞIÐ AÐ MÆTA Á ALLAR ÆFINGAR SVO VIÐ GETUM NOTAÐ TÍMANN BETUR Á ÆFINGUM, Í STAÐ ÞESS AÐ EYÐA TÍMANUM Í AÐ KENNA SAMA HLUTINN AFTUR OG AFTUR.
það fer ekki milli mála hverjar eru að æfa sig heima og eru með bolta eins oft og þær geta, því þar eru framfarirnar mestar.
Kv. Jón
13.3.2008 | 16:00
Það styttist í næstu æfingu
Sælar stelpur,
Það er heldur betur farið að styttast í fimmtudagsæfinguna, aðeins 50 mín (þegar þetta er skrifað).
Allir að mæta á réttum tíma og tilbúnar í brjálaða keyrslu á æfingunni.
sjáumst
kv. Jón
10.3.2008 | 19:21
Eruð þið nokkuð hættar að lesa bloggið??
Hæ stelpur,
Vildi bara vera viss um að þið lesið bloggið nokkrum sinnum á viku, helst daglega.
ERU EKKI ALLAR AÐ LESA ÞAÐ NOKKRUM SINNUM Í HVERRI VIKU
Kv. Jón
Tenglar
Ýmislegt
- Vinna á Ljósanótt Sett inn 2. september kl. 09:18
- Iðkendur Stúlkurnar í 7. og 8. flokki og foreldrar
- Fjáröflunar- og skemmtinefnd Fjáröflunar- og skemmtinefnd
- Söfnun - uppgjör Uppgjör á söfnunarpeningum
Mínir tenglar
Eldri færslur
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar