Leita í fréttum mbl.is

Fjáröflun á Ljósanótt - skrá sig strax

Til stendur að KarfaN, sem eru Unglingaráð Keflavíkur og Njarðvíkur verði með sameiginlegan sölubás á Ljósanótt.  Við þurfum að manna sölubásinn nk. föstudag og laugardag. 

Þær stúlkur sem æfa með 8. og 9. flokki og hafa áhuga á því að taka þátt í þessari söfnun verða að skrá sig hér á bloggið fyrir kl. 20. fimmtudaginn 1. september.

ATHUGIÐ AÐ 1-2 FORELDRAR VERÐA AÐ VERA Á STAÐNUM LÍKA. FORELDRAR YKKAR ÞURFA ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT Í ÞESSU VERKEFNI AÐ EINHVERJU LEITI.

Verið duglegar að láta allar í liðinu vita, nota facebook og hringja í hinar.

NEFNDIN


SUMARFRÍ - SUMARFRÍ - SUMARFRÍ

Hæ stelpur,

Nú tökum við gott sumarfrí í nokkrar vikur og mætum svo á nokkarar æfingar fyrir landsmótið sem verður haldið um verslunarmannahelgina á Egilsstöðum þetta árið.

Þegar líður að landsmótinu mun ég boða ykkur á æfingar.

ÞIÐ EIGIÐ ALLAR AÐ NOTA SUMARIÐ VEL OG VERA Í KÖRFU ÞEGAR ÞIÐ GETIÐ, OG OFT ER ÞAÐ BESTI TIÍMINN TIL ÞESS AÐ BÆTA SIG.

Einhverjar stelpur úr 8.flokki stúlkna verða valdar til þess að æfa körfubolta í vinnuskólanum í sumar og þá er um að gera að nýta sér það vel.

Einnig verða einhverjar æfingar fyrir 7.flokk stúlkna sem ég vil hvetja ykkur til að nota.

Gleðilegt sumar
Kv. Jón


Engin æfing á fimmtudag og föstudag

Hæ stelpur,

Það verða engar æfingar á fimmtudag og föstudag.

Allar að mæta á lokahóf yngriflokkanna á fimmtudag kl 18.00 í A-sal.

Næsta æfing verður á þriðjudag.

Kv. Jón


Takk fyrir frábæran dag stelpur !

Skemmtiferð föstudaginn 1. apríl tókst í alla staði frábærlega. Byrjað á LaserTag í LaserTag salnum í Kópavogi. Þar var stelpunum 22 skipt í 3 lið og kepptu allir tvo leiki. Liðunum gekk mis vel í keppninni og einstaklingunum einnig en keppnin snýst um að safna sem flestum stigum. Eftir keppnina var pizza og tilheyrandi á staðnum.

Síðan var ekið í Vestubæinn og keptur ís í Ísbúð Vesturbæjar og þaðan var farið í DHL höllina að horfa á leik þrjú í einvígi KR og Keflavíkur karla. Við fengum framlengdan leik og sáum alls 274 stig skoruð en Keflavík vann frækinn sigur 139 - 135.

Það eina sem hægt er að segja eftir þennan dag er:
TAKK KÆRLEGA FYRIR STELPUR Happy
Myndir frá ferðinni eru komnar inn í albúm hér til hliðar.

Þið voruð sjálfum ykkur, félaginu og foreldrum algjörlega til sóma og fyrirmyndar, eins og alltaf.
ÁFRAM KEFLAVÍK!

HPIM3212


Skemmtiferð til Reykjavíkur !

Jæja stúlkur! Þá er komið að því að launa ykkur fyrir frábæran árangur í vetur.  Nú er búið að skipuleggja skemmtiferð til Reykjavíkur nk. föstudag 1. apríl (þetta er ekki gabb).

Dagskráin er:
Kl. 15.00 Farið frá Íþróttahúsinu við Sunnubraut
Kl. 16.00 Laser-tag í Reykjavík
Kl. 17.30 Pizza og gos eftir leikina í Laser-tag
Kl. 18.00 Komið við í Ísbúð Vesturbæjar
Kl. 18.45 Mæting í DHL-höllina á leik KR-Keflavík(karla).
Kostnaður í Laser-tag er kr. 1700.- og innifalið í því eru 2 leikir, 2 pizzusneiðar og gos á eftir.  Síðan þarf að hafa með sér pening til að kaupa ís og fara á leikinn hjá Meistaraflokki karla.Þið þurfið að skrá ykkur á bloggið fyrir miðvikudag og láta vita hverjir geta verið á bílum því eitthvað af foreldrum þarf að fylgja með til að keyra.
Mikilvægt er að mæta kl. 14.40 að Sunnubraut því við þurfum að leggja af stað kl. 15.00 og vera komnar kl. 15.45 á staðinn til að undirbúa leikina í Laser-tag.
Allar að mæta í nýju peysunum J
Ef einhverjar spurningar þá hafið samband við Björgu (s. 899-6490) eða Víði (s. 862-7114)


Keflavik Íslandsmeistari í 7. flokki kvenna

7flokkur_4umf_mars2011-189

Innilega til hamingju stúlkur.  Sjá umfjöllun á keflavik.is


B-liðið væntanlega dregið úr keppni :-(

Hæ stelpur,

Eins og við ræddum um í gær á æfingu verðum við því miður líklega að draga B-liðið úr keppni þar sem yngri stelpurnar sem spiluðu með okkur síðast geta ekki spilað þessa helgi og hafa þær ýmsar ástæður fyrir því (veikindi og fleira)

Við stefnum hins vegar að því að hafa 4 liða mót á okkar heimavelli fljótlega því við viljum endilega að þið fáið að spila meira því þið stóðuð ykkur frábærlega í síðasta móti.

Ef þið farið ekki að keppa um helgina vil ég vil endilega fá ykkur til þess að mæta með A-liðinu um helgina þrátt fyrir að ég geti ekki endilega haft ykkur í liðinu og eða látið ykkur spila, en af sjálfsögðu ráðið þið því.

Kv. Jón


A-liðið í Heiðarskóla og Toyota-höllinni um helgina

Hæ stelpur,

Mæting á Laugardag kl. 15.50 í Heiðarskóla þar sem við ætlum að sjá um ritaraborð í fyrsta leik sem verður Njarðvík-Tindastóll.

Við spilum svo leik kl. 17.15 á móti Hrunamönnum og kl. 20.15 á móti KR.

Svo á sunnudeginum mætum við í hús kl. 8.45 til þess að sjá um ritaraborðið í fyrstu 2 leikjunum. Kl 11 spilum við fyrsta leik á móti Njarðvík og svo síðasta leik kl. 13.00 á móti Tindastóli.

Best er að hafa 3-4 saman á borði og vil ég að þið græið það. Þegar við erum að keppa mæta stelpurnar í 8.flokki á ritaraborðið.

Kv. Jón


Peysur - upphitunartreyjur

Hæ stelpur,

Það verða peysur til sölu fyrir alla yngri flokka kvk í Keflavík (5.bekkur og upp)

Ætlast er til að þær séu notaðar sem upphitunar peysur. Kveikjan af þessu er sú: Þegar að bikarhelgin var fyrir stuttu átti Keflavík stúlkur í úrslitum í öllum flokkum kvenna og okkur varð ljóst að ekkert heildar útlit var á stelpunum okkar. Þannig að þessi hugmynd kom upp hjá okkur foreldrum að bjóða peysur til sölu fyrir allar stúlkurnar.

Það verður mátun á morgun miðvikudag í A-sal (uppi) frá kl 18.00-20.00

Verðið er 3.000 kr fyrir peysu með merkingu þ.e K-merkið framan á, niður með erminni verður skrifað Keflavík og aftan á verður nafn viðkomandi:)

Vonum að sem flestir taki vel í þessa hugmynd okkar og kaupi sér peysu:

Kv. Jón


8. flokkur - Íslandsmeistarar 2011

8flokkur_Íslandsmeistarar2011-325


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Stúlkurnar í 7. og 8. flokki
Stúlkurnar í 7. og 8. flokki
Björn Einarsson s. 864-3123 bjossieinars10@yahoo.com

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband