Leita í fréttum mbl.is

Unglingalandsmót Íslands 2010 - Verslunarmannahelgina

Kæru foreldrar, 

Ég heiti Svandís og tók að mér að sjá um skráninguna fyrir börnin í körfuboltanum í Keflavík. 

Ég hef núna fengið meiri upplýsingar um kostnaðinn vegna þátttökugjalds og peysu. Hver þátttakandi mun fá styrk frá Aðalstjórn Keflavíkur eins og undanfarin ár. Í þetta sinn er kostnaðurinn fyrir þátttökugjald og peysu, 13.000-, en foreldrar munum þurfa að leggja út 5.000-

Svo að ég hafi rétta skráningu á barnið þitt þá langar mig að biðja þig um að senda mér á póst á svandis@svei.is með eftir farandi upplýsingum.

Í hvaða greinum barnið mun taka þátt í. Keppnisgreinar sem eru í boði þetta árið eru: Dans, Frjálsíþróttir, Glíma, Golf, Hestaíþróttir, Knattspyrna, Körfubolti, Motocross, Skák og Sund.

(það er bara eitt gjald greitt og barnið má keppa í þeim greinum sem því langar til að spreyta sig í. Það gæti þurft að velja á milli ef eitthvað stangast á.)

Fullu nafni barnsins, kennitölu barnsins, nafn foreldra, póstfang (e-mail) og gsm númer foreldra. (ef fleiri en eitt barn þá má senda mér upplýsingarnar um öll börnin í einu e-mail ég finn út í hvaða flokki það er. Þið megið alveg senda upplýsingar um systkin sem ekki eru að æfa körfu og ég mun koma þeirri skráningu áleiðis.)

Ég hvet alla til að vera duglega að fylgjast með bloggsíðum barnanna þar sem að nánari upplýsingar koma þar þegar líða fer á sumarið. Og einnig mun ég senda ykkur póst þegar nær dregur með frekari upplýsingum.

Verið dugleg að láta þetta berast á milli ykkar foreldra svo að ég fái nú upplýsingarnar sem fyrst og það verði hægt að búa til nóg af peysum. 

Kær kveðja Svandís
Símar 421-5363 /867-3048


Útihlaup og styrktaræfingar

Hæ stelpur,

Núna er komin tími á útihlaup og styrktaræfingar eða er það ekki annars????

Við ætlum að mæta tvisvar til þrisvar í viku og hlaupa góðan hring um bæinn og gera styrktaræfingar með.

Við ætlum að vera með þessar æfingar á þriðjudögum, fimmtudögum og (laugardögum) þegar þið eruð ekki í sumarfríi með fjölskyldunni.

Hittumst á grasflötinni heima hjá mér að Heimavöllum 9 kl. 15.00 þriðjudaga og fimmtudaga, en á laugardögum gerið þið prógrammið sjálfar.

Við byrjum fjörið næsta þriðjudag kl.15

Látið vita að þið mætið í athugasemdum

Kv. Jón


Unglingalandsmót UMFÍ 2010 í Borgarnesi

Hæ stelpur/foreldrar

Nú styttist í unglingalandsmótið sem verður haldið í Borgarnesi þetta árið.

Við stefnum á að mæta með okkar stelpur á mótið eins og undanfarin ár og væri gott ef foreldrar gætu skráð sig hér í athugasemdum hvort þau hyggist mæta eða ekki.

Fyrir þá sem ekki hafa mætt get ég sagt að þetta er alveg ótrúlega gaman bæði fyrir keppendur og foreldra og allir hafa nóg fyrir stafni.

Kv. Jón


Sumaræfingar 2010 byrja 11.júní 2010

Hæ stelpur,

Ákveðið hefur verið að hafa æfingar fyrir ykkur í sumar og vil ég hvetja ykkur til þess að mæta vel á þær. Allar æfingarnar í sumar verða í Heiðarskóla.

Einar Einarsson mun sjá um þessar æfingar og mun Hörður Axel og fleiri verða honum til aðstoðar þannig að þið fáið nóg að gera.

Æfingagjaldið fyrir þessar æfingar fram að Unglingalandsmótinu verður 5000 kr.

Æfingataflan fyrir sumarið lítur svona út:

mánudaga kl.12.00-13.15
miðvikudaga kl.12.00-13.15
Föstudaga kl.12.15-13.30


FORELDRAFUNDUR Á MIÐVIKUDAG KL 18.

HÆ STELPUR / FORELDRAR

MKIÐVIKUDAGINN 2.JÚNÍ 2010 VERÐUR HALDIN FORELDRAFUNDUR Í SAL HOLTASKÓLA.

RÆTT VERÐUR UM:

SUMARÆFINGAR

LANDSMÓT

ÆFINGA OG/EÐA KEPPNISFERÐ

KV. JÓN


UPPSKERUHÁTÍÐIN Í DAG KL 18

Hæ stelpur,

VIL MINNA YKKUR ALLAR Á UPPSKERUHÁTÍÐ YNGRIFLOKKA SEM VERÐUR HALDIN Í TOYOTA-HÖLLINNI KL 18 Í DAG.

VEITTAR VERÐA VIÐURKENNINGAR FYRIR:

MESTAR FRAMFARIR

MIKILVÆGASTI LEIKMAÐURINN

BESTI LEIKMAÐURINN

Sjáumst


eldri æfing á morgun.

Það verður æfing á morgun (miðvikudag)klukkan 14:50.
æfingi er aðeins fyrir eldri og þykjustunni eldri(Svanhvít,Thelma,Elfa, Kristrós,Emelía,Þóra og Indíana)

láta þetta berast til allra sem eiga mæta á æfingu.

Kv. Jón


Æfingabúðir í Smáranum í júní

Hæ stelpur,

Mig langar að hvetja ykkur (stelpur fæddar 1998 og 1997) til þess að mæta í æfingabúðir sem haldnar verða í Smáranum fyrstu vikuna í júní 2010.

Farið verður í grunnatriði eins og boltameðferð, skot og sendingar, vörn, skríningar, hraðupphlaup, og eiginlega allt sem tengist íþróttinni, og svo í skemmtilega leiki og keppnir.

Yfirþjálfari æfingabúðanna er Ágúst Björgvinsson þjálfari karla og kvennaliðs
Hamars í Hveragerði. Einnig mun Ágúst fá aðstoð frá þjálfurum og leikmönnum annarra liða.

Kv. Jón


Engin æfing á morgun sunnudag

Hæ stelpur,

Það verður engin æfing á morgun sunnudag

Næsta æfing verður auglýst Á blogginu, allar að fylgjast með.

Kv. Jón


ÆFINGIN Á MORGUN FÖSTUDAG

Hæ stelpur,

Æfingin á morgun föstudag byrjar kl 15.10 en ekki 16.20.

Láta þetta berast á allar.

Engar æfingar verða um helgina þar sem þjálfarinn verður ekki í bænum.

Kv. Jón


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Stúlkurnar í 7. og 8. flokki
Stúlkurnar í 7. og 8. flokki
Björn Einarsson s. 864-3123 bjossieinars10@yahoo.com

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband